Skip to Content
Fara beint í efni

Um Rými

Um Rými

Þekking á búnaði og rýmum, frá fyrstu hugmynd að notkun. Kynntu þér Rými og leiðirnar að ráðgjöf, lausnum og þjónustu.

Húsnæði Rýmis með grænu fyrirtækismerki
Rými — ráðgjöf, lausnir og þjónusta.

Fólkið okkar

Mannauður er okkar mikilvægasta auðlind!

Hjá Rými starfar vel samsettur hópur framúrskarandi einstaklinga sem flestir hafa yfir að ráða mikilli þekkingu og reynslu á sínum sviðum. Það er því til merkis um góðan árangur okkar frábæra teymis að hafa verið á lista Credit Info yfir framúrskarandi fyrirtæki allt frá árinu 2016. Við erum stolt af þeim árangri og ekki síður þakklát okkar frábæra starfsfólki, takk fyrir.

Eigendur og stjórn

Stjórnendur og sterkar hugmyndir

Rými er í dag rekið sem fjölskyldufyrirtæki og er í eigu feðganna Hjálmars Kristmannssonar, Kristmanns Hjálmarssonar og Ragnars Arnar Hjálmarssonar auk eiginkvenna þeirra. Hefur Hjálmar yfir að ráða meira en 40 ára reynslu af rekstri og hefur marga fjöruna sopið. Kristmann og Ragnar hafa menntað sig á sviðum raftækni og mannauðs og leiða uppbyggingu og stefnu félagsins af festu. Okkar markmið er að skapa okkar starfsfólki góðan aðbúnað og verkferla til að nýta sína hæfileika, viðskiptavinum okkar til góða. Við erum með skýra framtíðarsýn og erum spennt fyrir áskorunum komandi ára.

Frá 1936 til dagsins í dag

Sagan

Fyrirtækið okkar byggir á grunni gamalgróins fyrirtækis! HF Ofnasmiðjan var stofnuð af Sveinbirni Jónssyni, byggingameistara frá Ólafsfirði árið 1936. Allar götur síðan höfum við kappkostað að standast tímans tönn og þróast með síbreytilegu samfélagi. Árið 2012 komu núverandi eigendur að rekstrinum og hafa staðið að miklum endurbótum á innviðum og aðstöðu fyrirtækisins.

Sjá Sögu Ofnasmiðjunnar

Rými Ofnasmiðjan ehf.

Fyrirtækið í tölum

Kennitala
580199-3059
Heimilisfang
Gylfaflöt 4, 112 Reykjavík
Félagsform
Einkahlutafélag
VSK númer
60970
ÍSAT flokkun
46.90.0 Blönduð heildverslun

Ræða verkefni

Viltu ræða þitt verkefni við okkur?

Fólkið og reynslan á bak við lausnirnar.