Lausnir · Verkstæði og framleiðsla
Verkstæði þar sem allt á sinn stað
Hver mínúta sem fer í að leita að verkfæri er mínúta sem ekki er unnin. Við skipuleggjum verkstæðið út frá verkunum – vinnuborð, skápa, veggi og hillur sem passa saman.
- Vinnuborð, skápar og veggir
- Fyrir bíla-, véla- og trésmiðjur
- Uppsetning frá Rými

Fyrir hverja
Hvernig verkstæði rekur þú?
Bifvélavirki, trésmiður og framleiðslulína þurfa ólík tæki – en sama skipulagið: rétt verkfæri á réttum stað.
Bílaverkstæði
Vinnuborð, skúffuskápar og dekkjageymsla sem halda gólfinu hreinu og verkfærunum við höndina.
Ræða bílaverkstæði →Vélaverkstæði og smiðjur
Sterk vinnuborð, upphengikerfi og hillur fyrir þunga hluti og efni.
Skoða vinnuborð →Framleiðsla
Vinnustöðvar, vagnar og smávöruhillur sem styðja flæðið frá efni að vöru.
Ræða framleiðslu →Viðhaldsdeildir
Varahlutir og verkfæri skipulögð svo hægt sé að bregðast hratt við.
Ræða viðhald →Búnaður
Allt fyrir verkstæðið
Vinnuborð, geymsla og verkfæri frá einum aðila – hannað til að vinna saman.
Skipulag
Skipulag sem sparar tíma á hverjum degi
Vel skipulagt verkstæði er öruggara, hreinna og afkastameira. Þegar hvert verkfæri á sinn stað sést strax ef eitthvað vantar.
Við byrjum á verkunum sem eru unnin og teiknum vinnusvæðin út frá þeim – ekki öfugt.
Verkfæri
Verkfæri í vefverslun
Borvélar, sagir, slípirokkar, rafhlöður og fylgihlutir – pantaðu beint á vefnum.
Skoða verkfæri →Svona vinnum við
Frá hugmynd að skipulögðu verkstæði
Við skipuleggjum verkið svo það trufli sem minnst daglegan rekstur.
Við skoðum aðstæður
Komum á staðinn eða förum yfir teikningar – mælum, spyrjum og hlustum.
Teikning og tilboð
Þú færð teikningu, búnaðarlista og verð áður en nokkuð er pantað.
Afhending
Rými sér um pöntun, flutning og að allt komi á réttum tíma.
Uppsetning og eftirfylgni
Við setjum upp, göngum frá og erum til staðar eftir afhendingu.
Ráðgjöf
Segðu okkur frá verkstæðinu
Hvað er unnið á verkstæðinu, hvað er rýmið stórt og hvað vantar helst? Við höfum samband með næstu skref.
- Netfang[email protected]
- HvarGylfaflöt 4, 112 Reykjavík
- OpiðMán–fös 8:30–17:00