Garðheimar
Ráðgjöf, hönnun og uppsetning á djúpstöflunarrekkum, brettarekkum, lagerhillum, milligólfi og vörulyftu.
Lausnir · Lager og vöruhús
Fullkomið vöruhús er sniðið að þörfum starfsfólks, vöruflæði og rými. Við hönnum skipulagið með þér, reiknum út burðarþol og önnumst alla uppsetningu á búnaði til að tryggja hámarks skilvirkni.

Byrjaðu á vörunni
Bretti, smáhlutir og langt efni kalla á ólík kerfi. Við byrjum á því sem á að geyma – og hversu oft þarf að ná í það.
Brettarekkar, djúpstöflun og rúllurekkar – frá nokkrum brettum upp í heilt vöruhús.
Brettarekkar →Lagerhillur, smávöruhillur og kassar sem halda þúsundum vörunúmera í röð og reglu.
Lagerhillur →Armarekkar fyrir timbur, rör og plötur – inni eða úti.
Armarekkar →Millipallar, færanleg rekkakerfi og hilluturnar sem nýta lofthæðina og gólfið betur.
Nýta rýmið betur →Búnaður
Rekkar, hillur, öryggi, tínsla og lyftarar frá einum aðila – sem passar saman frá fyrsta degi.
Gerðu það sjálf/ur
Í Hillureikninum setur þú inn mál rýmisins, dregur hillurnar á sinn stað og færð vörulista með verði á nokkrum mínútum.
Stærri vöruhús, brettarekkar og millipallar fara alltaf í gegnum sölumann – þá færðu teikningu og burðarútreikninga með tilboðinu.
Hillureiknir
Mál, hillur, vörulisti og verð – beint í körfu eða sent á sölumann.
Opna Hillureikninn →Verkefni
Nokkur nýleg verkefni – frá einu lagerrými upp í heilt vöruhús.
Ráðgjöf, hönnun og uppsetning á djúpstöflunarrekkum, brettarekkum, lagerhillum, milligólfi og vörulyftu.
Metalsistem-hillukerfi fyrir skipulagðan aðgang að vörum á nýjum lager.
Eldri rekkar teknir niður og nýir brettarekkar frá Metalsistem settir upp.
Svona vinnum við
Vöruhús stoppar ekki á meðan. Við skipuleggjum verkið svo reksturinn haldi áfram.
Komum á staðinn eða förum yfir teikningar – mælum, spyrjum og hlustum.
Þú færð teikningu, búnaðarlista og verð áður en nokkuð er pantað.
Rými sér um pöntun, flutning og að allt komi á réttum tíma.
Við setjum upp, göngum frá og erum til staðar eftir afhendingu.
Ráðgjöf
Hvað á að geyma, hvað er rýmið stórt og hvenær þarf þetta að vera klárt? Við höfum samband með næstu skref.