Lausnir · Söfn, bókasöfn og skjalageymslur
Meira pláss fyrir það sem skiptir máli
Safnkostur stækkar en húsnæðið ekki. Með þéttiskápum, réttum hillum og góðu skipulagi má oft tvöfalda geymslurýmið – án þess að fórna aðgengi eða vernd.
- Allt að tvöfalt geymslurými
- Læsanleg og örugg geymsla
- Hannað eftir safnkostinum

Fyrir hverja
Hvað þarf að geyma?
Málverk, bækur og skjöl þurfa ólíka umgjörð. Við byrjum á safnkostinum, aðgangsþörfinni og varðveislukröfum.
Söfn
Geymslur fyrir muni, listaverk og safnkost sem þarf að vernda og finna aftur.
Ræða safnageymslu →Bókasöfn
Hillur sem halda bókunum aðgengilegum – frammi í sal og í geymslunni.
Ræða bókasafn →Skjalasöfn
Þéttiskápar sem tvöfalda rýmið og læsa skjölin inni.
Skoða þéttiskápa →Stofnanir og skólar
Skjalageymsla, búnaðargeymsla og skipulag fyrir opinberar byggingar.
Ræða verkefnið →Búnaður
Geymslur sem vernda og nýta plássið
Frá einstökum hillum upp í heilar geymsluhæðir.
Þéttiskápar
Tvöfalt geymslurými á sama gólffleti
Í þéttiskápum standa hillurnar á brautum og renna saman þegar þær eru ekki í notkun. Aðeins einn gangur er opinn í einu – restin af gólfinu fer undir safnkost.
Skáparnir fást með handsveif eða rafdrifi og læsingu, og vernda safnkostinn gegn ryki og ljósi.
Svona vinnum við
Frá talningu að tilbúinni geymslu
Flutningur safnkosts krefst nákvæmni. Við skipuleggjum verkið í samráði við starfsfólk safnsins.
Við skoðum aðstæður
Komum á staðinn eða förum yfir teikningar – mælum, spyrjum og hlustum.
Teikning og tilboð
Þú færð teikningu, búnaðarlista og verð áður en nokkuð er pantað.
Afhending
Rými sér um pöntun, flutning og að allt komi á réttum tíma.
Uppsetning og eftirfylgni
Við setjum upp, göngum frá og erum til staðar eftir afhendingu.
Ráðgjöf
Segðu okkur frá safnkostinum
Hvað þarf að geyma, hve mikið er það og hvaða kröfur eru gerðar um varðveislu? Við höfum samband með næstu skref.
- Netfang[email protected]
- HvarGylfaflöt 4, 112 Reykjavík
- OpiðMán–fös 8:30–17:00