Skip to Content

Sérpöntun Tilboð eftir málum

Djúpstöflun

Djúpstöflun hámarkar gólf- og rýmisnýtingu vöruhússins með því að lágmarka fjölda akstursganga. Kerfið er kjörin lausn þegar geyma þarf mikið magn af sömu vörutegund og ekki er gerð krafa um beinan aðgang að hverju einstöku bretti.

Hentar fyrir

  • Kæli- og frystigeymslur
  • Matvæla- og drykkjavörulagerar
  • Framleiðsla með mikið magn af sömu vöru
  • Árstíðabundinn lager

Útfærslur

Drive-in

Lyftarinn ekur inn í rekkann og raðar brettunum hvert á bak við annað, sem tryggir hámarksnýtingu á rými – sérstaklega í kæli- og frystigeymslum

Flæðirekkar

Brettin renna á hallandi keflabrautum frá hleðsluhlið að tínsluhlið. Fyrst inn, fyrst út – hentar sérstaklega vel fyrir matvæli og vörum með takmarkaðan líftíma.

Push-back

Nýtt bretti ýtir þeim sem fyrir eru aftar á vögnum eða keflum. Hleðsla og tínsla úr sömu hlið, 2–5 bretti í dýpt.

Svona vinnum við

  1. 01

    Greining

    Við förum yfir rýmið, vörurnar og markmiðin – á staðnum eða út frá teikningum.

  2. 02

    Hönnun og tilboð

    Teikning, burðarútreikningar og verðtilboð með afhendingartíma.

  3. 03

    Afhending

    Rými sér um pöntun, flutning og samskipti við framleiðanda.

  4. 04

    Uppsetning og þjónusta

    Fagleg uppsetning, úttekt og þjónusta eftir afhendingu.

Fyrirspurn

Fáðu tilboð

Segðu okkur frá rýminu og þörfinni. Teikning, mál eða myndir hjálpa okkur að svara fljótt og rétt. Sölumaður hefur samband við þig.

Finndu rétta lausn

Engar vörur eru birtar í þessum flokki í vefverslun. Rými aðstoðar þig við val á búnaði og sérlausnum.

Prófaðu vörunúmer eða annað leitarorð, skoðaðu vöruflokka eða fáðu aðstoð við verkefnið.