Skip to Content

Sérpöntun Tilboð eftir málum

Rúllurekkar

Rúllurekkar eru brettarekkar með hallandi keflabrautum. Brettin renna sjálf á sinn stað, svo hægt er að geyma mörg bretti í dýpt og ná alltaf í það fremsta. Kerfið sparar gangarými og heldur vörunni í réttri röð.

Rúllurekkar

Hentar fyrir

  • Matvæla- og drykkjavörulager
  • Kæli- og frystigeymslur
  • Framleiðslu með jöfnu vöruflæði
  • Tínslusvæði með mikla veltu

Útfærslur

Flæðirekkar – fyrst inn, fyrst út

Hlaðið að aftan, tínt að framan. Elsta varan fer alltaf fyrst út – hentar vörum með líftíma.

Push-back – síðast inn, fyrst út

Hleðsla og tínsla úr sömu hlið; nýtt bretti ýtir hinum aftar, 2–5 bretti í dýpt.

Hemlar og öryggi

Hraðahemlar á keflum og öflugir endastopparar tryggja stýrt flæði og örugga stöðvun bretta við tínsluhlið.

Svona vinnum við

  1. 01

    Greining

    Við förum yfir rýmið, vörurnar og markmiðin – á staðnum eða út frá teikningum.

  2. 02

    Hönnun og tilboð

    Teikning, burðarútreikningar og verðtilboð með afhendingartíma.

  3. 03

    Afhending

    Rými sér um pöntun, flutning og samskipti við framleiðanda.

  4. 04

    Uppsetning og þjónusta

    Fagleg uppsetning, úttekt og þjónusta eftir afhendingu.

Fyrirspurn

Fáðu tilboð

Segðu okkur frá rýminu og þörfinni. Teikning, mál eða myndir hjálpa okkur að svara fljótt og rétt. Sölumaður hefur samband við þig.

Finndu rétta lausn

Engar vörur eru birtar í þessum flokki í vefverslun. Rými aðstoðar þig við val á búnaði og sérlausnum.

Prófaðu vörunúmer eða annað leitarorð, skoðaðu vöruflokka eða fáðu aðstoð við verkefnið.