Skip to Content

Lausnir · Verslanir

Rétta umgjörðin um vöruna þína

Viðskiptavinurinn gerir upp hug sinn á örfáum sekúndum. Rétt hilla í réttri hæð, skýrar verðmerkingar og þægilegt flæði um verslunina skipta sköpum. Við hönnum skipulagið með þér og útvegum allan búnað.

  • Einn aðili frá teikningu til uppsetningar
  • Matvara, fatnaður, sérvara og apótek
  • Lagerinn á bak við líka
Verslun með hillum og vöruframsetningu

Bak við búðina

Góð verslun byrjar á lagernum

Ef starfsfólkið finnur ekki vöruna á lagernum, þá er hillan frammi tóm. Skipulagt bakrými styttir áfyllingu, fækkar mistökum og losar tíma til að sinna viðskiptavinum.

Lagerhillurnar getur þú teiknað sjálf/ur í Hillureikninum – og séð verðið um leið.

Hillureiknir

Teiknaðu lagerinn á nokkrum mínútum

Settu inn málin, dragðu hillurnar á sinn stað og fáðu vörulista með verði. Þú getur sett beint í körfu eða sent teikninguna á sölumann.

Opna Hillureikninn →

Svona vinnum við

Frá fyrstu mælingu að opnunardegi

Verslun opnar á ákveðnum degi. Þess vegna gerum við áætlun sem heldur – og stöndum við hana.

  1. Við hittumst í rýminu

    Mælum, skoðum vöruúrvalið og hvernig fólk á að ganga í gegnum búðina.

  2. Teikning og tilboð

    Þú færð útlitsteikningu, búnaðarlista og verð – áður en nokkuð er pantað.

  3. Afhending eftir plani

    Búnaðurinn kemur í réttri röð svo hægt sé að setja upp án biðar.

  4. Uppsetning og frágangur

    Starfsfólk Rýmis setur upp, stillir af og skilar búðinni tilbúinni.

Ráðgjöf

Segðu okkur frá versluninni

Hvort sem þú ert að opna nýja verslun eða endurnýja þá gömlu: lýstu stuttlega hvað þú ert með í huga og við höfum samband með næstu skref.