Einhliða eða tvíhliða
Einhliða við vegg eða tvíhliða í miðju rými, með hleðslu frá báðum hliðum.
Sérpöntun Tilboð eftir málum
Armarekkar eru gerðir fyrir langt og fyrirferðarmikið efni sem passar ekki í hefðbundna brettarekka: timbur, rör, prófíla, plötur og bylgjublöð. Engar fremri súlur eru í veginum, svo hægt er að hlaða með lyftara eða krana á alla lengd rekkans.

Einhliða við vegg eða tvíhliða í miðju rými, með hleðslu frá báðum hliðum.
Heitgalvanhúðað stál fyrir útisvæði sem þolir íslenska veðráttu.

Armarekkar með þaki verja efnið fyrir regni og snjó á útisvæði.

Við förum yfir rýmið, vörurnar og markmiðin – á staðnum eða út frá teikningum.
Teikning, burðarútreikningar og verðtilboð með afhendingartíma.
Rými sér um pöntun, flutning og samskipti við framleiðanda.
Fagleg uppsetning, úttekt og þjónusta eftir afhendingu.
Fyrirspurn
Segðu okkur frá rýminu og þörfinni. Teikning, mál eða myndir hjálpa okkur að svara fljótt og rétt. Sölumaður hefur samband við þig.
Rými bíður sérhæfða lausn armarekka fyrir öll verkefni.
Fáðu ráðgjöf við hönnun og burðargetu á þínum armarekka.