Vörulisti

Eitt mikilvægasta verkefnið við hönnun vöruhúss er að gera ýtarlega þarfagreiningu. Hvernig er vinnulagið í vöruhúsinu, hvers eðlis eru vörurnar og hver er lögun þeirra, hver er veltuhraðinn á hverri og einni og svo mætti lengi telja. Hjá Rými býr áralöng reynsla í hönnun vöruhúsa og mikið úrval lausna sem miða að því að ná fram hámarksnýtingu og hagkvæmni úr hverju vöruhúsi. Hér til hliðar getur þú kynnt þér helstu einkenni hverrar vörutegundar fyrir sig.