Einkunnarorð okkar eru:
Ráðgjöf - Lausnir - Þjónusta
Rými er leiðandi fyrirtæki á Íslandi í ráðgjöf, lausnum og þjónustu á sviðum verslunarinnréttinga, lagerinnréttinga og hvers kyns geymslu- og flutningskerfa.
Hjá Rými starfar samhentur hópur starfsmanna með áratuga reynslu af ráðgjöf á þessum sviðum.
Lausnirnar frá Rými hafa það að markmiði að:
- Bæta birgðastýringu á lagerum
- Auka sölu í verslunum
- Nýta geymslupláss betur
- Auðvelda störf á lagerum, við framleiðslu og flutninga
Rými er í samstarfi við hönnuði, teiknistofur, smiði og verkstæði sem annast undirbúning verkefna og sérsmíði.
Rými býður einnig þjónustusamning um reglubundið eftirlit með ástandi lagekerfa. Sérfræðingar okkar framkvæma þannig öryggisúttektir á lagerum og koma með tillögur að úrbótum, staðsetningu árekstrarvarna, fyrirbyggjandi viðhald og endurnýjun á skemmdum uppistoðum og þverslám. Slík úttekt getur haft áhrif til lækkunar tryggingariðgjalda vegna aukins öryggis auk þess að auka öryggi starfsfólks á lagerum.
Við framkvæmum einnig ókeypis úttekt á lagerrými, verslunarrými og skalarými. Við komum með tillögur sem bæta birgðahald, auka sölu, efla öryggi, spara pláss og tíma
Thomas Möller framkvæmdastjóri Rýmis býður auk þess viðskiptavinum Rýmis ráðgjöf og námskeið í vörustjórnun, verslunarstjórnun, vöruhúsarekstri, flutninga- og lagerskipulagi. Thomas hefur ráðlagt flestum stærri fyrirtækjum landsins á þessu sviði á undanförnum árum.
Hér til hliðar má sjá þá aukaþjónustu sem við bjóðum ásamt skilmálum varðandi skilafrest, heimsendingar o.fl.